Rítalín er í raun aðeins ein tegund lyfja sem innihalda virka efnið metýlfenídat (enska methylphenidate). Það örvar miðtaugakerfið og svipar því til efna á borð við koffín, sem meðal annars er í kaffi, súkkulaði og mörgum gosdrykkjum, og ólöglegra vímuefna eins og amfetamíns og kókaíns.
Efnasamsetning metýlfen...
Ýmis lyf, bæði gömul og ný, hafa verið prófuð við meðferð á COVID-19 en þegar þetta er skrifað (í byrjun maí 2020) hefur ekki fundist meðferð sem örugglega gagnast við sjúkdómnum. Með „gagnast“ er þá átt við lyf eða aðra meðferð sem slær verulega á sjúkdómseinkenni og fækkar dauðsföllum án þess að hafa alvarlegar ...
Martröð er óþægilegur draumur, en draumar eru meðvitundarástand sem er til staðar í svefni. Annars vegar er um að ræða straum tilfinninga og hins vegar atburðarás sem fólk upplifir og sér fyrir sér. Myndin er skynjuð í lit og líkist raunveruleikanum. Draumar með atburðarás eru líklega einkum á því stigi svefns sem...
Astmi er langvinnur bólgusjúkdómur í berkjum. Í astmakasti leiða vöðvasamdráttur og bólgubreytingar í berkju til þrengsla í öndunarvegi. Sjúklingurinn finnur fyrir andþyngslum, mæði, hósta og surgi eða ýli sem heyrist við útöndun. Þessi einkenni þurfa þó ekki öll að vera til staðar samtímis. Sumir astmasjúklingar...
Upprunalega spurningin hljóðaði svona:Er það rétt að maður fái minni túrverki ef maður er á pillunni og geta verið aukaverkanir af henni?
Það er rétt að getnaðarvarnarpillan getur dregið úr túrverkjum.
Túrverkir eru krampar eða verkir í kvið og mjaðmagrind sem fylgja tíðablæðingum. Túrverkir eru mjög breyti...
Öll spurningin hljóðaði svona: Getur kínín haft áhrif á sinadrátt, fótaóeirð, hjartsláttaóreglu og sem meðhöndlun malaríusníkla? Hvernig verkar kínín alkalóíðinn í líkamanum og á malaríusníkilinn?
Kínín er plöntubasi (alkalóíð) sem er að finna í berki kínatrésins, Cinchona. Nafnið hefur ekkert með landið Kína ...
Upphaflega spurningin var svohljóðandi:Er hægt að búa til lyf gegn veikinni Alzheimer, með því að genabreyta hákörlum og þá nota efnið úr heila þeirra (eins og í bíómyndinni Deep Blue Sea)?
Ég vil taka strax fram að ég hef ekki séð umrædda bíómynd og veit því ekki nákvæmlega hvað þar er gert. Ég geri hins vegar r...
Melatónín er efni sem myndast í heilakönglinum (e. pineal gland), sem er staðsettur nálægt miðju heilans. Efnið hefur verið þekkt í rúmlega 40 ár en lítið er vitað með vissu um þýðingu þess í líkamanum og er það ýmist kallað hormón eða taugahormón og nú er farið að nota það sem lyf. Mun meira af melatóníni losnar ...
Ristilkrampi eða iðraólga eru truflanir á starfsemi ristilsins. Þetta lýsir sér á þann hátt að í stað þess að reglubundinn samdráttur eigi sér stað í ristlinum þannig að hann flytji fæðuna taktvisst áfram, verður samdráttur á mismunandi svæðum samtímis og fæðan færist því oft treglega í gegn. Einnig getur frásog á...
Pedaníos Díoskúrídes var forngrískur læknir og grasafræðingur sem starfaði í Róm um og eftir miðja fyrstu öld. Hann var frá Caesareu í Kilikíu í Litlu-Asíu en er iðulega kenndur við Anazarbos en það er yngra heiti á borginni. Gjarnan er talið að Díoskúrídes hafi verið læknir í rómverska hernum en ályktunin byggir ...
Í stuttu máli er svarið við þessari spurningu það að alnæmi (Aquired Immunodeficiency Syndrome – AIDS) er sjúkdómurinn sem HIV veiran (Human Immunodeficiency Virus) veldur. Á heimasíðu Mannréttindaskrifstofu Íslands er að finna góða útskýringu á hugtökunum HIV og alnæmi. Þar segir:HIV er sú veira sem valdið getur...
Ópíöt eru lyf sem eru annaðhvort unnin úr ópíumi eða hafa svipaða efnafræðilega byggingu og virkni og slík lyf. Meðal ópíata teljast meðal annars morfín, heróín, kódín, metadón og petidín. Þau hafa áhrif á heila og miðtaugakerfi, til dæmis hafa þau öflug verkjastillandi áhrif og valda syfju, sljóleika og sælutilfi...
Morfín er helsta virka efnið í ópíumi en ópíum er unnið úr aldini ópíumvalmúans (Papaver somniferum). Þegar ópíum er ræktað er skorið á aldinið og út vætlar safi sem látinn er þorna í sólinni. Þegar efnið þornar verður það að gulbrúnu dufti sem síðan er skafið af aldininu.
Ópíum er unnið úr þurrkuðum safa ópíum...
Spurningin í heild hljóðar svona: Hvað er þvagsýrugigt? Af hverju stafar hún? Er hún hættuleg? Hver er meðferðin við henni?
Þvagsýrugigt byrjar oftast skyndilega með miklum verkjum og bólgu í einum lið. Sá liður sem oftast verður fyrir barðinu á þessu er fremsti liður stóru táar en aðrir liðir geta átt í hlut, ...
Fyrr á öldum var bólusótt (e. smallpox) mjög skæður sjúkdómur sem drap 10-20% allra þar sem bólusóttarfarsótt geisaði. Kúabóla (e. vaccinia) er hins vegar meinlaus kvilli sem veldur vörtum á spenum kúa og höndum mjaltakvenna en í lok 18. aldar tók breski læknirinn og vísindamaðurinn Edward Jenner (1749-1823) eftir...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!